Góðan
daginn, það er svo langt síðan það var bloggað á þessari
æðislegu síðu að ég ákvað að koma með eitt stykki
blogg!!
Það er
margt og mikið búið að gerast frá seinasta bloggi
ef bara ekki
nennt að blogga og ég efast stórlega að Arna hafi tíma til þess að
bara einfaldlega ,,HÚN BARA NENNIR ÞVÍ EKKI" hver veit, ég mun taka
hana í gegna þegar hún kemur heim
sem er já meðan ég man aðeins
3 og hálfur mánuðir til
víííí Arna er að koma heim
kannski
svona 3 mánuðir og 3 vikur eða eitthvað
sem gerir 15 helgar held
ég eða 14, æji eitthvað í þá áttina
.
En seinustu
helgi fórum við stelpurnar eða nánar til tekið ég, Karen, Rebekka,
Björg og Elsa í sumarbústað sem var bara helvíti gaman
fyrra
kvöldið var æðislegt, allir mjög hressir. Þá komum við um
föstudagskvöldið og fengum okkur að borða og gerðum rúmin klár og
svona, svo ákváðum við að gera eitthvað við þorstanum og drukkum
gotteríííí. Svo ákváðum við að fara í pottinn sem var mjög
þæginlegt og þar var sagt margt og mikið
en svo skelltum við
okkur uppúr í sturtu og svona og kvöldið endaði þannig að við fórum
að sofa um 3 leytið held ég alveg örugglega. Seinni dagurinn var
aðeins rólegri, þá skelltu Rebekka, Björg og Elsa sér í pottinn á
meðan ég og Karen bjuggum til snjókallinn Jósafat....(sakna þín
Jósafat) en hann dó sama dag, hann bara einfaldlega bráðnaði og
datt í sundur
. En svo um kvöldið kveikti Elsa á grillinu og
grillaði handa okkur stelpunum sem var mjög gott, en einmitt þá
náði hún að kveikja í kjötinu sínu sem varð svart!! haha. En svo um
kvöldið byrjuðum við eitthvað að súpa en það endaði þannig að við
fórum bara snemma að sofa, eða um eitt, en Björg fór heim þetta
kvöld
. Svo daginn eftir vöknuðum við hressar í kringum 11
leytið, fengum okkur að borða, og tókum til, skelltum dótinu út í
bílinn og héldum heim á leið, en þá var klukkan 14 mínútur yfir 13
. En mér fannst þetta alla vegana mjög vel heppnuð
sumarbústaðaferð
og vil ég bara þakka ykkur stúlkur mínar fyrir
þessa helgi!!!! (K)(K).
Þessi
skólavika hefur verið annsi svona róleg, það er eitthvað
jafnréttisvika og við erum bara búin að vera að horfa á myndir
(reyndar hef ég ekki séð neina mynd), fara á fyrirlestra sem er
búið að vera mjög gaman og svo í dag er eitthvað að gerast frá
11:00 - 13:30 og það verður boðið uppá pulsur og kók í hádeginu en
ég hef bara ekki NEINA lyst á pulsu, fæ mér frekar skyr
maður er
sko í hollustunni
verður að vera fitttttt þegar maður fer til
Spánar í sumar, ó já meðan ég man....ég er að fara til Spánar í
sumar 

jeijjj
með Kareni, Höllu, Óttari og öðru fólki frá
Verahvergi.....ég verð víst með Kareni, Höllu, Óttari og Jón Inga í
herbergi sem er bara cool! þetta verður geðveikt. Við vorum reyndar
að pæla hvort að Rebekka gæti komið með en svo erum við svona að
pæla það er nebbla búið að raða í herbergin og það getur verið að
það sé of seint að panta núna og eitthvað vesen
en það hefði
orðið mjög gaman ef hún hefði komið með! Gaman að sjá hana á barnum
en Rebekka kemur bara seinna
efffff hún kemur ekki núna,
þetta á allt eftir að koma í ljós
. En alla vegana þá verðum við
á Spáni í tvær vikur sem þýðir brúnn brúnn brúnn 
jeijj get
ekki beðið, en við förum út þann 12. júlí til 26.júlí (förum sem
sagt daginn fyrir afmælið hennar Karenar) en það er allt í lagi
.
En já við ætlum bara eða alla vegana ég að fara út með tóma
ferðatösku og bara VERSLA VERSLA VERSLA!! það kemur ekkert annað
til greina
. Svo förum við á ströndina, höngum við
sundlaugarbakkann í sólbaði, förum í stutt ferðalag til Alikante
haha hvernig sem það er nú skrifað, en já og svo heimsækjum við
barina á kvöldin
og svo ætlum við líka í froðubað, eitthvað
svoleiðis
bara stuuuððððð 
Eins og
bloggið heitir þá er 15. mars 2007 sem þýðir að MK árshátíðin er
eftir 14 daga
já bara tvær vikur újé og ég get ekki beðið
þetta verður vonandi gaman. Ég held að paparnir verði að spila og
einhver önnur hljómsveit og svo einhver DJ sem ég veit ekki baun
hver er. Árshátíðarfötin eru tilbúin
jeijj, svo er bara spurning
hvort maður fari út að borða eða kannski panti sér bara pizzu með
stelpunum, hver veit! en það vonda við að það eru bara tvær vikur í
árshátíðina er að það eru 15 daga þangað til ég fer í endajaxlatöku
....en það er bara að bíta á jaxlinn hahahahaha nei djók hahaha
það á að taka hann í burtu!! AHAHAHA góður þessi
en neinei það
er bara cool og gott að klára það
.
Núna næsta
þriðjudag er grímuball í Kvennó og mig langar svooo að fara og
Rebekku líka. Við erum búnar að segja við alla að við ætlum að koma
en ég er bara FÁTÆK.!!!! ég á 11.000 krónur eftir

og
árshátíðin í MK er eftir + matur + litun og plokkun + klipping og
strípur
svoo það er pæling með grímuballið, ég er bara búin að
heyra að það sé skemmtileasta ball sem er hjá Kvennó...og ef ég fer
þá ætla ég að vera.......SÚPERWÚMAN
újé!!! 
hehe, Rebekka
ætlar þá að vera einkaþjálfarinn hann Ási eða hann Ásmundur
hehe
bara cooooooollll 
En ég held
þetta sé orðið alveg ágætt
ætla að fara að fylgjast með í tíma
öhhhh.....en við sjáumst sykurpúðar.
ps. Arna ég
vil svo fara að sjá blogg frá þér, hallóóóó segja okkur hvað er að
gerast þarna úti hjá þér, það er eins og þú sért að forðast
okkur.
ps2. nei
Arna ég var bara að djóka, það er ekki eins og þú sér að forðast
okkur
:*:*:*
ps3. mig
langar samt að fá eitt blogg frá þér hingað inná.
ps4.
ókei....alla vegana áður en þú kemur heim 
:*:*
Sjáumst
sykurpúðar!!! :*